Starfsfólk brást fljótt við og náði að slökkva eld sem kom upp í iðnaðarþurrkara í húsi fyrirtækisins Daga í Garðabæ í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með mikinn viðbúnað þegar útkall barst vegna eldsins og aukinn mannskapur var kallaður út, að sögn Ólafs Garðarssonar varðstjóra. Liðsaukinn var svo kallaður til baka eftir að í ljós kom að starfsfólkið hafði náð stjórn á aðstæðum. Þegar frétt þessi er skrifuð er verið að reykræsta húsið.