Rúmlega 267 þúsund manns hafa skilað skattframtalinu þetta árið en landsmenn hafa verið eilítið duglegri við skilin en í fyrra. Skatturinn heldur úti sérstakri símavakt sem fólk getur leitað til ef það er í vandræðum.