Snædís Xyza Mae Jónsdóttir lagði rétt í þessu fjórtán diska í svokölluðu Miðjarðarhafsþema fyrir dómnefnd í Bocuse d’Or Europe-keppninni sem nú fer fram í Marseille. Hún hefur staðið við eldavélina frá klukkan 07.45 í morgun og hefur keppnin gengið vel hingað til.