Með lögfestingu laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna, sem tóku gildi 26. júní 2020, var gerð grundvallarbreyting á réttarumhverfi námslána hér á landi. Lögin leystu af hólmi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kynntu til sögunnar breyttar reglur, meðal annars um fyrningu krafna.