Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“

Rúnar Freyr Gíslason, leikari og verkefnastjóri hjá Rúv, situr í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ekki fer á milli mála hvað er efst á baugi hjá Rúnari þessa dagana: Ekkert gauf og ekkert hálfkák. Pólitíkin á hug hans allan þessa dagana.