Bretar vinna að áætlun um opnun Hormússunds í samstarfi við bandalagsþjóðir. Frá þessu greindi Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands á blaðamannafundi í dag. Starmer steig varlega til jarðar á fundinum og sagði að áhersla breskra stjórnvalda væri að tryggja öryggi síns fólks í heimshlutanum, eins og hann orðaði það. Bretar ætluðu ekki að dragast inn í stríðið. Hann sagði bandalagsþjóðir vinna að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að það yrði ekki á vegum Atlantshafsbandalagsins NATO. Bandaríkjaforseti vill aðstoð í Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við Financial Times að það yrði vont fyrir framtíð NATO ef bandalagsþjóðir myndu ekki aðstoða Bandaríkjamenn í Íran. Hann ætlaðist til þess að Evrópuríki aðstoðuðu Bandaríkin við Hormússund í ljósi mikillar aðstoðar sem Bandaríkin hafi veitt Úkraínumönnum í stríði þeirra við Rússa. Umferð um Hormússund hefur nær stöðvast á síðustu dögum. Um sundið, milli Persaflóa og Ómanflóa, liggur ein mikilvægasta siglingaleið heimshafanna, um fimmtungur alls olíuflutnings fer þar um. Ástandið hefur leitt af sér mikla hækkun á olíuverði. Íranar segja sundið opið öllum nema fjandmönnum sínum Kaja Kallas, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir mikilvægt að stríðið í Mið-Austurlöndum verði ekki til þess að athyglin hverfi frá Úkraínu og að Rússar hagnist á lokun sundsins. Utanríkisráðherrar ESB hitttast á fundi í dag þar sem Hormússund verður á meðal helstu umræðuefna. Ítalir Á blaðamannafundi í Tehran, höfuðborg Írans, í dag sagði Abbas Araghchi utanríkisráðherra að sundið væri aðeins lokað Bandaríkjamönnum, Ísraelum og bandamönnum þeirra. Frá okkar sjónarhóli er það opið, sagði hann.