Allir sakborningar neita sök í Reykholtsmálinu

Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, neituðu í dag sök í máli þar sem þau eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum. Ákæran á hendur fólkinu var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sakborningar hafna jafnframt bótakröfum í málinu. Áætlað að aðalmeðferð hefjist 17. ágúst. Sakborningarnir, sem eru tengdir fjölskylduböndum, eru sagðir hafa ruðst inn á heimili mannsins í Reykholti, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með grófu ofbeldi. Manninum hafi síðan verið haldið föngnum á heimili sínu , honum hótað, ógnað með hníf og haglabyssu, og beittur grófu ofbeldi, allt í þeim tilgangi að fá hann til að gefa þeim rafræn skilríki og upplýsingar um bankareikninga hans. Eftir að hafa millifært peninginn af reikningum mannsins eru þau sögð hafa keyrt manninn upp á flugstöð, fylgt honum þar inn og neytt hann með hótunum um dóttur hans yrði gerð mein færi hann ekki í flugið.