Allt á útopnu: Fyrsta íslenska konan leggur veislufat fyrir dómara í Bocuse
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir lagði rétt í þessu veislufatið sitt fyrir dómnefnd í Bocuse d’Or Europe-keppninni sem nú fer fram í Marseille. Þar með hefur hún lokið keppnishluta dagsins eftir að hafa staðið við eldavélina frá klukkan 07.45 í morgun.