Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handbolta sleit liðband í ökkla í leik Volda og Glassverket í Noregi í gær. Þessu greinir Handbolti.is frá í dag. Dana sem er rétthendur hornamaður hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu síðasta eitt og hálfa árið og farið með Íslandi á síðustu tvö stórmót, á EM 2024 og á HM 2025. Slitið liðband í ökkla ætti að halda Dönu frá keppni út leiktíðina. Af þeim sökum verður hún þá fjarri góðu gamni með íslenska landsliðinu þegar það sækir Færeyjar heim til Þórshafnar 8. apríl og taka svo á móti Portúgal 12. apríl að Ásvöllum á Íslandi. Það verða síðustu leikirnir í undankeppni EM og mikilvægt að Ísland sæki sigra þar til að komast á Evrópumótið.