Fjárhættuspilarar hóta blaða­manni líf­láti

Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan.