Gerðu flugskeyta- og drónaárásir á furstadæmin

Flugskeyta- og drónaárásir voru gerðar víðs vegar um Sameinuðu arabísku furstadæmin í dag. Árásirnar hafa meðal annars raskað ferðum um flugvöllinn í Dúbaí og orðið til þess að eldur kviknaði í mikilvægri olíumiðstöð í austurhlutanum. Einn óbreyttur borgari hefur látist í árásunum.