Eftir Óskarsverðlaunahátíðina fagnaði Michael B. Jordan sigri með því að fara á hamborgarastaðinn In-N-Out í Los Angeles. Jordan var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Sinners. TikTok Embed @gigi100599 Staðurinn var ekki lengi að fyllast eftir að það fréttist að Jordan væri þar. Fólk streymdi að í von um að sjá leikarann. Jordan er ekki fyrsti Óskarsverðlaunahafinn sem snæðir á In-N-Out eftir hátíðina. Það er orðið ákveðin hefð hjá leikurum að enda kvöldið á hamborgarastaðnum. Þó að ástæðan sé ekki vituð er hægt að ganga út frá því að staðsetning staðarins og gæði matarins spili inn í. Nýbakaður Óskarsverðlaunahafi fékk sér í gogginn á leiðinni heim af hátíðinni. Hann skildi ekki við sig verðlaunagripinn góða.