Byggingarfyrirtækið Húsheild-Hyrna hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst bóta vegna kostnaðar og tafa við byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði. Krafan hljóðar upp á 850 milljónir auk dráttarvaxta. Átök um hvort uppfæra þyrfti hönnunargögn Á Hornafirði er verið að stækka hjúkrunarheimilið Skjólgarð þannig að allir geti verið í sér herbergi. Við hjúkrunarheimilið stendur nú ókláruð nýbygging og einnig á eftir að endurnýja eldra húsnæði. Framkvæmdir gengu hægt og átök voru á milli verktakans og Framkvæmdasýslu ríkiseigna og taldi verktakinn að hönnunargögnum eða teikningum væri ábótavant. Í október rifti framkvæmdasýslan samningum við verktakann Húsheild-Hyrnu vegna tafa og samdi við Ístak um að klára verkið. Húsheild Hyrna sagði þá í yfirlýsingu að tafirnar hefðu ekki verið fyrirtækinu að kenna. Þær mætti rekja til vinnubragða hjá framkvæmdasýslunni. Hönnunargögn hafi verið ófullnægjandi og ókláruð þegar verkið var boðið út. Það hafi valdið töfum og teikningarnar hafi þá enn ekki verið tilbúnar. Framkvæmdasýslan hafi hins vegar kennt fyrirtækinu um tafirnar, dregið háar tafabætur af greiðslum til húsheildar Hyrnu og hótað riftun. Það hafi sett verkið í uppnám og valdið enn frekara tjóni og töfum. Nú hefur Húsheild-Hyrna stefnt ríkinu vegna tjóns sem fyrirtækið telur að rekja megi til lélegrar verkstjórnunar af hálfu Framkvæmdasýslu ríkiseigna. Samkvæmt heimildum fréttastofu krefst fyrirtækið 850 milljóna auk dráttarvaxta og verður krafan dómtekin á næstunni. Ágætur gangur hefur verið í framkvæmdum við hjúkrunarheimilið undanfarið og er stefnt á að hægt verði að flytja þar inn eftir tvo og hálfan mánuð eða í byrjun júní.