Lögregla lokar fyrir umferð austan um Miklubraut á milli klukkan 20 og 21 í kvöld, frá aðrein að Skeiðarvogsbrú. Á þeim tíma verður umferð austur götuna beint upp á Skeiðarvogsbrú og Réttarholtsveg. Fram kemur í tilkynningu að lokunin sé tilkomin vegna rannsóknar lögreglu, en akreinum sem liggja að Miklubraut til austurs frá Réttarholtsvegi og Skeiðarvogi verður einnig lokað á sama tíma. Lögregla lokar hluta Miklubrautar á milli 20 og 21 í kvöld.RÚV / Ragnar Visage