Þóra Jónasdóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun stýra farsældarsviði þess. Hún er fyrsta konan sem er skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn embættisins. Þóra hefur starfað sem varðstjóri, aðalvarðstjóri og aðstoðaryfirlögregluþjónn og stýrði lögreglustöðinni í Kópavogi frá 2015 til 2024, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Þar höfðu hún og samstarfsfólk hennar frumkvæði að því að hefja og innleiða samfélagslöggæslu. Þóra Jónasdóttir.Aðsend / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu