Íranar muni taka stríðið „eins langt og nauðsynlegt er“

Íranar sögðust reiðubúnir að halda stríðinu í Miðausturlöndum áfram „eins lengi og nauðsynlegt væri“ í kjölfar árása sem gerðar hafa verið víðs vegar um svæðið í dag. Þá hefur íranski byltingarvörðurinn hótað því að beina spjótum sínum að bandarískum fyrirtækjum víðs vegar um svæðið og hvatt starfsmenn til að yfirgefa staðina.