Ráðamenn hafa tekið nokkuð fálega í óskir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um hernaðaraðstoð til að hægt sé að opna Hormússund aftur fyrir skipaumferð. Á samfélagsmiðlinum Truth Social óskaði Trump eftir aðstoð ríkja á borð við Bretland, Kína, Frakkland, Japan og Suður-Kóreu. Þá sagði hann við Financial Times að það yrði mjög slæmt fyrir framtíð NATO ef bandalagsþjóðir aðstoða ekki Bandaríkjamenn í Íran. Lesa má úr orðum Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands að Þjóðverjar ætli ekki að senda herskip í átt að Hormússundi. „Þetta er ekki okkar stríð, við hófum það ekki.“ sagði hann við fréttamenn í dag. Keir Starmer forsætisráðherra Breta sagði á blaðamannafundi í dag að Bretar ynnu að áætlun um opnun sundsins með bandamönnum sínum. Aðgerðin yrði þó ekki á vegum NATO. Um fimmtungur allrar olíu sem notuð er í heiminum er fluttur um sundið sem skilur að Persaflóa og Ómanflóa. Ríki Asíu reiða sig á olíu sem fer þar um. Stjórnvöld í Suður-Kóreu segjast ætla að ræða náið við Bandaríkin um framvinduna og taka ákvörðun að vel athuguðu máli. Kínversk yfirvöld hafa ekki greint frá því hvort þau verði við beiðni Trumps. Talsmaður sendiráðs þeirra í Washington segir alla deiluaðila bera ábyrgð á að orkuframboð haldist stöðugt. Þá hafa Japanir og Ástrali sagst ekki ætla að senda herskip í Hormússund.