Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann sem sveiflaði sverði á miðri akbraut. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið „vanstilltur“ og „talsvert æstur“. Lögregla yfirbugaði manninn, sem var illa viðræðuhæfur sökum vímuástands, eins og þar segir. Sverðið reyndist eftirlíking. Maðurinn var vistaður í fangaklefa og verður þar uns hann verður metinn hæfur til skýrslugjafar. RÚV / Ragnar Visage