Til­kynnt um mann með sverð

Lögreglu var í dag tilkynnt um mann með sverð og var hann sagður „talsvert æstur“ þar sem hann sótti sér þjónustu á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu. Sverðið reyndist vera eftirlíking en þegar laganna verðir komu á staðinn var maðurinn gangandi á miðri akbraut og sveiflaði því, að sögn lögreglu.