Aðeins tveir Bítlanna eru á lífi. Strákarnir í Hljómum, Dátum, Flowers, Ævintýri og Roof Tops eru komnir í hóp aldraðra, þeir sem eru á annað borð ofan moldu. Við sem ólumst upp við bítl erum líka farin að reskjast og tilhlökkunin um að samfélagið umvefji okkur með kærleika og blómum á þriðja æviskeiðinu er fokin út í veður og vind. Það blasir nefnilega lítið annað við en að ellin verði okkur erfið.