Fólk úr öllum áttum fyllti hótelið

Um 140 manns gistu á Hótel Laugarbakka í nótt og loka þurfti fyrir bókanir því síminn stoppaði ekki eftir að þjóðvegurinn lokaðist. Fiskur dagsins og hamborgarar kláruðust fljótt á veitingastað hótelsins.