Spurði hvort Alma teldi sig hæfa til að koma að ráðningu

Ingibjörg Ólöf Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir hvort Alma D. Möller heilbrigðisráðherra teldi sig hafa verið hæfa til þess auglýsa stöðu framkvæmdastjóra sjúkrahússins á Akureyri (SAK). Ingibjörg minntist þess að Hildigunnur Svavarsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri sjúkrahússins, hefði nýlega sagt upp störfum og vísað til skorts á trausti af hálfu heilbrigðisráðherra. Vegna þessa þyrfti fljótlega að taka ákvarðanir um framtíð og rekstur sjúkrahússins. „Einmitt við slíkar aðstæður er lykilatriði að enginn vafi leiki á hæfi og óhlutdrægni ráðherra sem fer með yfirstjórn málaflokksins og þar með eftirlit með Sjúkrahúsinu á Akureyri,“ sagði Ingibjörg. Ingibjörg nefndi þrjú atriði máli sínu til stuðnings. Í fyrsta lagi að Alma hefði nýlega vikið úr sæti við meðferð máls sem sneri að ferliverksamningum á sjúkrahúsinu. Fjallað var um það nýlega að samlagsfélag Ölmu og eiginmanns hennar, Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Í öðru lagi að eiginmaður hennar hefði lagt fram vantrauststillögu á framkvæmdastjóra SAK í kjölfar fyrirætlana um uppsögn á ferlisverkasamningum. Í þriðja lagi sagði hún að í beinu framhaldi hefði Alma tekið þá ákvörðun að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra SAK. Fagráð sjúkrahússins hefði lýst yfir verulegum áhyggjum af stöðunni og ályktað að farsælast hefði verið að forstjóri hefði setið áfram. „Samkvæmt 3. gr. stjórnsýslulaga er stjórnvald vanhæft þegar aðstæður eru til þess fallnar að óhlutdrægni þess sé dregin í efa, óháð því hvort raunveruleg hagsmunatengsl séu til staðar. Umboðsmaður Alþingis hefur ítrekað þessa lögskýringu,“ sagði Ingibjörg. Með þetta allt í huga spurði hún hvers vegna heilbrigðisráðherra hefði talið sig hæfa til þess að auglýsa stöðuna lausa. Alma sagðist þekkja hæfisreglur stjórnsýslulaga vel og að þær væru ekki hugsaðar þannig að viðkomandi gæti komið sér hjá erfiðum ákvörðunum. Ákvörðun hefði verið tekin um að auglýsa stöður forstjóra heilbrigðisstofnana sem losnuðu á þessu ári. Bundið væri í lög að upplýsa skyldi um ákvörðun varðandi auglýsingu á starfinu með að minnsta kosti sex mánaða fyrirvara. Alma taldi sig enn hæfa til að auglýsa starfið og hvatti fyrri fyrrum framkvæmdastjóra SAK til að sækja aftur um ef hún teldi sig áfram hafa mikið fram að færa. Ingibjörg svaraði þessu með því að undirstrika að ekki væri nauðsynlegt að auglýsa starfið þegar sami maður getur verið endurskipaður, eins og oft sé gert. Hún spurði þá einnig hvort heilbrigðisráðherra ætlaði að koma að ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra. Alma sagði það fara eftir því hverjir myndu sækja um starfið. Hún sagði þá einnig að margir ráðgjafar innan heilbrigðisráðuneytisins hefðu komið að þeirri ákvörðun að auglýsa starfið. Hún undirstrikaði þó að ákvörðunin væri hennar og á hennar ábyrgð.