Yfir milljón lent á vergangi í Líbanon á síðastliðnum tveimur vikum

Friedrich Merz kanslari Þýskalands segir landhernað Ísraelshers í Líbanon vera mistök sem eigi eftir að auka enn frekar á mannúðarkrísuna í landinu. Hann segir stjórnvöld í Þýskalandi hvetja vini sína í Ísrael til að hætta við að fara þessa leið. Tyrkneska utanríkisráðuneytið fordæmdi ákvörðun Ísraelshers harðlega fyrr í dag og sagði hana til þess gerða að auka óstöðugleika í heimshlutanum og leiða til enn frekari hörmunga. Í tilkynningu Ísraelshers frá því í morgun segir að um takmarkaða og hnitmiðaða aðgerð sé að ræða sem beint sé gegn Hezbollah-samtökunum. Líbönsk yfirvöld segja yfir milljón manns hafa lent á vergangi eftir að stríð Ísraels og Hezbollah hófst fyrir tveimur vikum.