Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vonast til þess að geta auglýst hluta af lóð kísilversins í Helguvík til úthlutunar í sumar. Þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. keypti mannvirkið og lóðina á síðasta ári og Reykjanesbær keypti hluta lóðarinnar í febrúar. Niðurrif á hluta Reykjanesbæjar hófst í dag. Ekki er ljóst hver kostnaðurinn verður fyrir bæinn. Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, reiknar með að niðurrif klárist í sumar. „Þá getum við farið að skipuleggja lóðina til framtíðarúthlutunar. Það eru aðilar áhugasamir um að koma til okkar, enda erum við með frábæra staðsetningu í Helguvík, nálægt höfninni, alþjóðaflugvelli, þannig að landsvæðið vissulega áhugavert að þróa en við höfum alveg allavega bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ lokað á frekari þungaiðnað,“ segir Guðný. Hún segir heldur ekki liggja fyrir hvað verði gert á þeim hluta sem tilheyrir Reykjanes Investment.