Við fjöllum um heimsmarkaðsverð á áli sem hefur ekki verið hærra í fjögur ár og einnig um ummæli Bandaríkjaforseta sem lét að því liggja að úti væri um Atlantshafsbandalagið ef bandamenn myndu ekki senda herskip að Hormússundi, kröfu sem Evrópuleiðtogar hafa tekið fálega í. Þá segjum við frá vaxandi atvinnuleysi í byggingageiranum en íbúðabygging á landsvísu hefur dregist mikið saman frá árinu 2023 og segja samtök iðnaðarins markaðinn í vítahring.