Hálfpartinn öskruðu við að heyra úrslitin

Þær Júlí Arna Sigurjónsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir í 10. bekk í grunnskólanum í Vestmannaeyjum sigruðu hönnunarkeppnina Stíl á laugardaginn. Þema keppninnar var Viktoríutímabilið og útsjónarsemin var allsráðandi við efnisval í kjólinn. Keppnin sterk Júlí Arna segir keppnina hafa verið gríðarlega sterka og að tilfinningarnar hafi nánast borið vinkonurnar ofurliði þegar úrslitin voru tilkynnt. „Við hálfpartinn öskruðum þegar það var kallað nafnið á félagsmiðstöðinni okkar um að við hefðum unnið. Við vorum ótrúlega hissa.“ Nánast engu var eytt í hönnunina nema tíma. „Við notuðum bara gömul efni úr saumastofunni í skólanum. Þú veist allur kjóllinn er úr gardínum, bara notuðum gardínum,“ segir Júlí Arna. Og skiptuð þið eitthvað með ykkur verkum? „Heyrðu já við skiptum með okkur verkum. Hún Aþena gerði skartgripi fyrir hönnunina og síðan gerðum við Elísabet saman kjólinn. Við skiptumst á að hanna öll pilsin. Þetta voru tæp fjögur pils á kjólnum og við vorum heillengi að gera hönnunarmöppuna okkar heima hjá henni Elísabetu vinkonu. Þetta var svo skemmtilegt.“ Höfðu tvívegis misst af stóru keppninni Vinkonurnar höfðu unnið heimakeppnina tvisvar sinnum áður en komust ekki með Herjólfi í stóru keppnina vegna veðurs. Því var sigurinn í stóru keppninni enn sætari en ella. „Já, það var býsna leiðinlegt að komast ekki í alvöru keppnina en við vorum mjög þakklátar að komast núna seinasta árið okkar í 10. bekk og erum bara í skýjunum eftir að hafa unnið,“ segir Júlí Arna að lokum.