Vill vinna bug á manneklu á hjúkrunarheimilum með hærri launum

Enginn verður á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2030, gangi áætlanir félags- og húsnæðismálaráðherra eftir. Ný áætlun ráðherra var kynnt á Hrafnistu, í Garðabæ, í dag. 725 eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og listinn lengist því sífellt fjölgar í hópi aldraðra. 200 einstaklingar á þessum lista eru í biðrýmum á heilbrigðisstofnunum. Skortur á hjúkrunarrýmum er ein helsta ástæðan fyrir alvarlegri stöðu Landspítalans; aldrað fólk sem lokið hefur meðferð liggur áfram á spítalanum því það fær hvergi inni á hjúkrunarheimili. Kynnti nýja „leiguleið“ og segir mönnun verða áskorun Í fyrra voru gerðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og málefni aldraðra og uppbygging hjúkrunarheimila er nú alfarið á vegum ríkisins. Fyrra samkomulag byggðist á sameiginlegu eignarhaldi ríkis og sveitarfélaga. Inga kynnti í dag nýja leið, leiguleið. „Það verða verktakar sem sjá um uppbygginguna, við munum leigja af þeim húsakosti. Aðrir aðilar sem síðan koma að rekstrinum.“ Ríkið mun bjóða út rekstur hjúkrunarheimilis annars vegar og byggingu þess gegn langtímaleigusamningi hins vegar. Rekstrarkostnaður verður á herðum heilbrigðisráðuneytisins. Kostnaður tekinn inn í nýja fjármálaáætlun ríkisins Er búið að fjármagna þessa framkvæmdaáætlun? „Já, það er bara ákveðinn grunur sem hefur verið reiknað með og kemur inn í fjármálaáætlun. Þannig að jájá, það stendur ekki á því,“ segir Inga og bætir við að það muni ekkert koma í veg fyrir byggingu 1.507 nýrra hjúkrunarrýma. Í dag standa einhver hjúkrunarrými auð vegna manneklu og í áætluninni er sérstaklega tekið fram að mönnun geti verið mikil áskorun. Ráðherra vill vinna bug á henni, meðal annars með því að hækka laun. „Ég er nú bara að vona það já, að það hafi þannig áhrif á kjarasamningana að lægstu launin þau þurfa að hækka.“ Inga segir nauðsynlegt að hækka lægstu launin til að búa til hvata og auka áhuga á ummönnunarstörfum. „Þetta eru vanþakklát störf oft á tíðum og mjög mörg láglaunastörfin eru einmitt í þessum þjónustugeira. Sem að í rauninni ætti að virða miklu miklu meira heldur en mér finnst vera gert í dag.“