Rúmlega milljón er á flótta í Líbanon vegna loftárása Ísraelshers síðustu vikur og á níunda hundrað hafa verið drepin í árásunum. Ísraelsher réðst í hernaðaraðgerð í suðurhluta landsins í dag. Takmörkuð hernaðaraðgerð „Við Netanjahú forsætisráðherra gáfum hernum skipanir um að leggja í rúst innviði hryðjuverkamanna í landamæraþorpum Líbanons til að koma í veg fyrir ógnir og endurkomu Hezbollah. Rétt eins og við fórum að á Gaza,“ sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, á fundi með fjölmiðlum í dag. Hernaðaraðgerð Ísraelshers er sögð takmörkuð. Herinn hefur gert stöðugar loftárásir á Líbanon síðan 2. mars eftir að Hezbollah skutu eldflaugum yfir landamærin sem viðbragð við drápi Ísraela og Bandaríkjamanna á Khamenei æðstaklerki Írans. Síðdegis sögðu yfirvöld í Líbanon að yfir milljón manns hafi lagt á flótta vegna árásanna og að 886 hið minnsta hafi verið drepin í þeim, þar af yfir hundrað börn. Yfirvöld í Líbanon segja að rúmlega milljón manns séu á flótta innanlands vegna árása Ísraelshers. Íbúar Íbúar í höfuðborginni hafa leitað út á götur til að flýja loftárásir, sem dunið hafa nánast stanslaust á borginni síðustu tvær vikur. Gist í tjöldum og á gangstéttum Rim Awwad er skopmyndateiknari og býr í Beirút, höfuðborg Líbanon. Hún segir erfitt og sárt að yfirgefa heimili sitt. „Húsið okkar, minningarnar og allt sem við höfum gengið í gegnum. Ég tók ljósmyndirnar með og svo auðvitað köttinn.“ Margir eiga ekki í nein hús að venda og gista í tjöldum og á gangstéttum í borginni. Ola er á flótta í Dahieh-hverfi í suðurhluta Beirút, sem er vígi Hezbollah-samtakanna. „Við erum svöng og eigum ekki neitt. En þessi fórn er ekkert í líkingu við þeirra sem veita andspyrnu í suðri. Andspyrnan verndar okkur og nærir.“ Íbúar leita þangað sem þeir geta fyrir nauðsynjar, jafnvel á skyndibitastaði. „Ég elska McDonald's, þeir leyfa okkur að nota salernisaðstöðuna og internetið. Við höfum ekki þráðlaust net hér,“ segir Sana, sem er kennari. Óskir fólksins eru einfaldar. „Við viljum að stríðinu ljúki strax,“ segir Ma sem einnig er á flótta.