Þjóðvegi 82 um Ólafsfjarðarmúla, það er Ólafsfjarðarvegur á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, hefur verið lokað vegna snjóflóðs. Greint er frá þessu á vef Vegagerðarinnar, Umferdin.is . Hættustigi var lýst yfir við Ólafsfjarðarmúla klukkan 19. Kortamynd af Umferdin.is þar sem hægt er að sjá hvar vegurinn er lokaður.Umferdin.is / Vegagerðin