„Meðan ég er á­nægð skiptir á­lit annarra engu“

„Ég er svo heppin að tengjast ömmu á þennan hátt þar sem hún dó þegar ég var mjög ung,“ segir tískudrottningin María Hrund sem er 24 ára gömul og starfar sem verslunarstjóri í Andrá Reykjavík. María Hrund er útskrifaður klæðskeri og lifir fyrir góð snið, gæðaefni og skart. Hún ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn, verðmæta erfðagripi og persónulegan stíl.