Aldrei hefur jafn mikil kvika safnast undir Svartsengi frá upphafi eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni. Magnið bendir til að líklegt sé að gjósi á ný. Kvika undir Svartsengi hefur ekki verið meiri frá upphafi eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni. Átta mánuðir eru frá síðasta gosi. Landris og kvikusöfnun hafa verið hæg en stöðug síðustu vikur. Talið er að um 23 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi. Átta mánuðir eru frá því að síðast gaus á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta er lengsta goshléð sem hefur verið frá því að eldsumbrotin hófust og mesta kvikumagnið sem safnast hefur. Miðað við hversu mikið magn af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi telja vísindamenn líklegt að það endi með gosi. Mestar líkur eru á að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni, norðaustan við Svartsengi. Opna nýja verslun í Grindavík Á sama tíma og kvikusöfnun heldur áfram er uppbygging í fullum gangi í Grindavík. Dæmi um það er matvöruverslunin sem var opnuð í síðustu viku, en engin búð hefur verið í bænum síðan hann var rýmdur í lok árs 2023. „Það var algjör vöntun á einhverri smá verslun til að grípa í það nauðsynlegasta,“ segir Bjarney Högnadóttir, verslunareigandi. Hún segist finna fyrir þakklæti bæjarbúa og hefur ekki áhyggjur af því að þurfa að rýma verslunina fari að gjósa á ný. „Alls ekki. Við erum öllu vön. Við tökum bara á því ef það þarf.“ Þó að það sé rólegt í búðinni í dag þá býst hún við blómlegri viðskiptum í sumar. „Það var alla vega mikið af ferðamönnum síðasta sumar, þannig að ég býst bara við því sama. Eða vona það alla vegana.“