Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu.