Lokuðu Miklubraut vegna rannsóknar lögreglu

Miklubraut við Rauðagerði í Reykjavík var lokað í austurátt í um klukkustund í kvöld. Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir tvær ástæður fyrir lokuninni. Vegagerðin vann að lagfæringu vegriðs og lögregla nýtti tækifærið til að rannsaka yfirborðsgrip á akrein sem sneri til austurs. Árni segir veggripsmælingarnar hluta rannsóknar á umferðarslysi á Miklubraut í upphafi febrúar. Sautján ára piltur lést í slysinu en bifreiðin sem hann var farþegi í hafnaði á vegriði.