Í kvöld: Ísland og Portúgal mætast í síðasta leik undanriðilsins

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir því portúgalska í síðasta leik liðanna í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027. Leikurinn fer fram í Ólafssal á Ásvöllum og verður í beinni útsendingu á RÚV. 2 Leikurinn hefst klukkan 19:30 en Stofan mun hitta upp frá klukkan 19:00. Ísland leikur í þriggja liða riðli þar sem efstu tvö liðin komast beint áfram á næsta stig undankeppninnar. Þriðja sætið gæti komist áfram en til þess þarf að vera eitt af þremur stigahæstu liðunum í þriðja sæti. Ísland hefur tapað öllum þremur leikjunum til þessa en á þó enn möguleika á öðru sæti riðilsins með nógu stórum sigri á Portúgal í kvöld. Portúgal vann fyrri leik liðanna með 30 stigum, 100-70.