Kjartan Atli Kjartansson, fjölmiðlamaður og körfuboltaþjálfari, leiðir Samfylkinguna í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framboðslisti Samfylkingarinnar í Garðabæ var samþykktur samhljóða á félagsfundi í dag. Í 2. sæti listans er Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri, og í 3. sæti er Rakel Margrét Viggósdóttir, kennari og deildarstjóri. 4. sætið skipar Vilmar Pétursson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, og í 5. sæti er Ögmundur Árni Sveinsson.