Meiri kvika gæti þýtt stærra eldgos

Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, telur líklegra að næsta eldgos í Sundhnúksgígaröðinni verði á næstu dögum eða vikum frekar en að margir mánuðir séu í það. Aldrei hefur jafn mikil kvika safnast undir Svartsengi frá upphafi eldgosahrinunnar en Kristín segir mögulegt að meiri kvika geti þýtt stærra eldgos. Oddur Þórðarson ræddi við Kristínu um kvikumagnið í sjónvarpsfréttum í kvöld. Kvikumagn hefur ekki verið meira frá upphafi eldgosa í Sundhnúksgígaröðinni. Líklegt þykir að það gjósi á næstu dögum eða vikum. „Styttist í gos“ „Kvikuinnflæðið hefur verið mjög hægt undanfarið,“ segir Kristín. Hún bendir á að kvikumagnið sé nú örlítið meira en þegar síðasta eldgos hófst, 1. apríl í fyrra. „Við túlkum þetta auðvitað svo að við séum bara mjög nálægt þessum þolmörkum og það hreinlega styttist í gos.“ Þýðir meiri kvika endilega stærra gos? „Meiri kvika gæti þýtt það, já, að það verði stærra gos. Varðandi upptakastað þá erum við alltaf að tala um þennan sama stað og áður – við erum að tala um Sundhnúksgígaröðina.“ Kristín segir að það sé komin ansi mikil kvika undir Svartsengi. Ekki hefði komið henni á óvart ef gosið hefði fyrir jól. Líklega sé aðeins tímaspursmál hvenær af því verði. „Þetta er bara mjög hægt innflæði og ég held að við séum komin að þessum þolmörkum núna. Hvort þetta eru dagar eða vikur, eða hvort við þurfum að bíða enn í einhverja mánuði sem ég tel nú kannski ólíklegt, en við erum einhvers staðar þarna,“ segir Kristín. Átta mánuðir eru liðnir frá síðasta eldgosi en sífellt lengri tími hefur liðið á milli gosa í hrinunni. „Við erum að sjá líka að það er að hægja á þessu innflæði. Það er það sem að líkönin eru að segja okkur og stemmir ansi vel við þetta. En í rauninni á meðan það er landris í gangi, á meðan líkön okkar benda til þess að kvika sé að flæða þarna inn undir, þá er atburðurinn ekki búinn og það eru enn líkur á gosi.“