Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru eigenda og ábúenda í Öræfum er varðaði framkvæmdir við gistihús við Skaftafell. Búið er að reisa þrettán hús en gert er ráð fyrir því að þau verði sjötíu. Nágrannar gistihúsabyggðarinnar segja að illa hafi verið staðið að kynningu á breytingum á skipulaginu og ekkert samráð haft við íbúa þegar fjöldi húsa var tvöfaldaður og húsin hækkuð. Í úrskurði nefndarinnar segir að jarðir kærenda séu í töluverðri fjarlægð frá gistihúsabyggðinni. Þar að auki séu þar önnur mannvirki nokkuð sýnileg; þar á meðal hótel, veitingastaður og þjóðvegur eitt. Þótt nokkurra ásýndaráhrifa muni gæta verði ekki talið að í heild sinni sé um verulega hagsmunaskerðingu að ræða.