Eins og ef ein­hver myndi hella vatni yfir tölvu

Sjúkraþjálfari sem fékk Long Covid árið 2020 og er öryrki í dag líkir líkama sínum við tölvu sem einhver hafi hellt vatni yfir. Alþjóðlegur dagur Long Covid var í gær og segir sjúkraþjálfarinn hann bráðnauðsynlegan, þeir sem greinist með veikindin mæti enn skilningsleysi.