Fannst nakin og örend í snjóskafli

Síðustu árin í lífi Linu, sænskrar konu sem fannst látin í snjóskafli í sumarbústaðabyggð í Svíþjóð 21. nóvember 2022, eru ein samfelld sorgarsaga af röð stórfelldra mistaka og vanmats heilbrigðiskerfa tveggja landa. Sagan af þrautagöngu Linu og móður hennar hófst í Noregi og lauk í Svíþjóð.