Fyrri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður lokið

Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður lauk skömmu fyrir 23 í kvöld. Málið fer nú til utanríkismálanefndar áður en það fer til síðari umræðu. Búist er við að það verði hjá nefndinni í nokkrar vikur. Flestar fyrirspurnir stjórnarandstöðunnar til ráðherra undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir á þingfundi í dag snerust um þingsályktunartillöguna fyrir umræðurnar sjálfar. Stjórnarandstaðan nýtti til að mynda nærveru Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, til að spyrja hana út í afstöðu Flokks fólksins til þjóðaratkvæðagreiðslunnar og Evrópumála almennt. Inga Sæland neitaði þó að segja hvernig hún hygðist greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem áætlað er að verði 29. ágúst 2026.