Allt að 400 manns voru drepnir og 250 eru sagðir særðir eftir miklar loftárásir pakistanska hersins á fíknimeðferðarstöð í Kabúl höfuðborg Afganistan í gær. Tölur um mannfall eru óljósar og heimildarmönnum AFP fréttaveitunnar ber ekki saman um mannfall. Talsmaður heilbrigðismálaráðuneytisins, Sharafat Zaman, sagði 200 hafa verið drepna og yfir 200 væru særðir Hamdulla Fitrat, einn talsmanna talibanastjórnarinnar, sagði þó að helmingi fleiri hefðu verið drepnir og 250 séu særðir. Stjórnvöld í Pakistan segja að árásinni hafi verið beint að hernaðarlegum innviðum og neita því að árásin á meðferðarstöðina hafi verið viljandi. Pakistanski herinn hefur gert miklar árásir á borgir og héruð í Afganistan á undanförnum vikum. Átökin milli landanna hafa stigmagnast síðan 26. febrúar þegar Pakistan lýsti yfir stríði gegn Afganistan. Að minnsta kosti 75 almennir borgarar hafa verið drepnir síðan, að ótöldum þeim sem féllu í árásinni í gær. Viðskipti yfir landamærin eru nær engin og 115.000 manns eru á vergangi vegna átakanna. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hóf dreifingu matvæla til 20.000 fjölskyldna á sunnudaginn. Stofnunin hefur varað við því að enn meiri óstöðugleiki í landinu geti valdið hungursneyð fyrir milljónir Afgana.