Útboð vegna jarðvegsvinnu fyrir nýtt fangelsi á næstu vikum

RÚV / Bragi Valgeirsson Útboð vegna jarðvegsvinnu er fyrirhugað á næstu vikum vegna bygginar nýs öryggisfangelsis á Stóra-hrauni og hefjast framkvæmdir í kjölfarið. Farið var yfir stöðu fangelsismála í sérstakri umræðu á Alþingi í gær. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra sagði undirbúning að fangelsinu ganga vel. Fangelsið verður með 128 afplánunarrými og mun bæta aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum og efla öryggi að sögn dómsmálaráðherra.