Finnar geta ekki orðið við beiðni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að senda herskip að Hormússundi til að tryggja öryggi og umferð flutningaskipa um sundið. Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir því að Atlantshafsbandalagsþjóðir sendi skip að Hormússundi, en beiðni hans hefur ekki hlotið mikinn hljómgrunn bandalagsþjóða. Í frétt finnska ríkisútvarpsins YLE , kemur fram að Finnar geti ekki boðið fram aðstoð sína. Finnski sjóherinn á einungis þrjú herskip. Þau eru öll sérútbúin fyrir aðgerðir í Eystrasaltshafi og ekki er hægt að nýta þau til verkefna utan þess hafsvæðis, að sögn Annele Apajakari, talskonu finnska sjóhersins. „Skipin eru smíðuð fyrir finnskar aðstæður,“ sagði Annele. Að hennar sögn voru þau smíðuð áður en Finnar gengu í Atlantshafsbandalagið og því útbúin fyrir þjóðaröryggi Finnlands. Eldra skip finnska sjóhersins, sem var sérstaklega útbúið til að leggja tundurdufl, hefði verið hægt að nýta í alþjóðlegum aðgerðum en það skip er ekki lengur í notkun. Finnski varnarmálaráðherrann Elina Valtonen sagði í gær að Finnland væri í nánu samstarfi við bandalagsþjóðir varðandi Hormússund. Átökin í Mið-Austurlöndum væru þó ekki forgangsmál hjá Finnlandi, mesta ógn Finna væru Rússar. „Vörn Úkraínu gegn Rússlandi er mikilvægasta verkefni Evrópu og það krefst mikils af okkur öllum,“ sagði Valtonen við YLE þegar hún kom til fundar utanríkisráðherra Evrópusambandsins í Brussel í gær.