Sjö hand­teknir í tengslum við meiri­háttar líkams­á­rás

Sjö menn voru handteknir í póstnúmerinu 105 í gærkvöldi eða nótt, í tengslum við meiriháttar líkamsárás. Allir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Þá voru tveir aðrir handteknir í tengslum við aðrar líkamsárásir, báðir í annarlegu ástandi.