Betra að setja upp sól­gler­augu inni á kvöldin en úti í morgun­sólinni

Slysa- og bráðlæknir segir vannýtt tækifæri innan heilbrigðiskerfisins í heilsueflingu og forvörnum. Hún telur venjur nútímasamfélagsins leiða til svokallaðrar „birtuvillu“ þar sem líkamsklukkan ruglast. Sjálf notar hún þá ekki sólarvörn en tekur fram að sólbruni geti haft alvarlegar afleiðingar.