Frístundastyrkur fyrir 67 ára og eldri!

Nóbelsverðlaunahafinn George Bernard Shaw sagði eitt sinn: „Við hættum ekki að leika okkur vegna þess að við eldumst; við eldumst vegna þess að við hættum að leika okkur.“ Í þessari setningu felst ákveðin viska. Þegar við prófum nýja hluti, hreyfum okkur og förum út fyrir þægindarammann höldum við bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Það gildir ekki síður á efri árum en þeim yngri.