„Ég er mjög óhrædd manneskja. Mér finnst breytingar alltaf góðar,“ segir sellóleikarinn og tónskáldið Gyða Valtýsdóttir. Hún semur tónlist við kvikmyndina Porto Rico í leikstjórn rapparans René „Residente“ Pérez Joglar. Með aðalhlutverkið fer einn þekktasti tónlistarmaður heims um þessar mundir, Bad Bunny. Þetta er stærsta kvikmyndaverkefni Gyðu til þessa en hún hefur samið tónlist við kvikmyndir, stuttmyndir og heimildarmyndir. Hún hefur verið viðloðandi tónlistarbransann frá unglingsárum og vakti fyrst athygli með rafsveitinni Múm. Einnig er von á nýrri plötu frá Gyðu í mars sem ber heitir Mother Pearl. Hafði samband í gegnum Instagram „Ég fékk Instagram-skilaboð frá René, leikstjóranum, sem ég hef örugglega opnað einhvers staðar í röðinni í Krónunni því ég svaraði ekki,“ rifjar Gyða upp um tildrög verkefnisins. Þá hafði leikstjórinn samband til að stinga upp á því við Gyðu að vinna saman. Nokkrum dögum síðar hafði hann aftur samband og spurði hvort hún hefði séð skilaboðin sín. Þá ákvað Gyða að kanna málið frekar og sá að hann var með um átta milljónir fylgjenda. „Ég ætti kannski aðeins að athuga hvað hann er að biðja um,“ hugsaði hún. „Þá var hann að biðja mig um að semja tónlistina við þessa mynd.“ Þetta var í fyrra vor en alltaf lá fyrir að vinnan myndi hefjast ári síðar. Porto Rico er fyrsta kvikmyndin sem rapparinn leikstýrir en hann hefur áður leikstýrt tónlistarmyndböndum. Sögusvið myndarinnar er pólitískt og tilfinningarlegt landslag Púertó Ríkó á síðustu öld. Handritið skrifar hann ásamt Alexander Dinelaris sem leikstýrði meðal annars kvikmyndinni Birdman. Á meðal annarra leikara í myndinni eru Viggo Mortensen, Edward Norton og Javier Bardem. Tökur hefjast í sumar eftir því sem Gyða best veit. Uppástunga frá gervigreind Gyða spurði Joglar hvernig hann hefði vitað af henni. Hann sagðist hafa sett handritið inn í gervigreindarforrit og spurt hver ætti að semja tónlistina og þá hafi nafn hennar komið upp. „Það er eiginlega svolítið lygilegt,“ segir Gyða sem veit þó ekki nákvæmlega hvað hann bað gervigreindina um. Hún segir ekki algengt að fólk hafi samband í gegnum Instagram til að biðja um samstarf heldur sé oftast farið í gegnum umboðsmenn. Hún sé þegar farin að semja tónlistina og segir Joglar taka virkan þátt í ferlinu. „Hann er alltaf að hringja, enda er þetta eitthvað sem hann er búinn að vinna að lengi og skiptir hann miklu máli.“ Hann hafi kynnt sér verk Gyðu mjög vel áður en hann hafði samband og hefur samstarf þeirra gengið vel. Tónlistin muni einnig hafa skírskotun í púertó-ríkanska bomba-tónlist sem á sér mjög ríka og djúpa hefð og hann sé duglegur að senda henni innblástur. Hún sé að leika sér með það hvernig hún ætli að nálgast hana í ákveðnum senum. Gyða er á leiðinni til Púertó Ríkó í vikunni til að vinna með Joglar og taka upp tónlistarfólk þaðan fyrir myndina. Kemur út á hárréttum tíma Vinna við kvikmyndina hófst árið 2023 og eftirvæntingin er mikil meðal kvikmyndaunnenda. Púertó Ríkó hefur verið mikið í deiglunni, sér í lagi vegna þeirri athygli sem beinst hefur að tónlistarmanninum Bad Bunny, sem heitir réttu nafni Benito Antonio Martínez Ocasio. Hann sópaði að sér Grammy-verðlaunum í ár og kom fram í hálfleik Ofurskálarinnar sem uppskar miklar umræður. Gyða segist hafa fengið að vita að „Benito“ færi með aðalhlutverk myndarinnar en var ekki klár á hver það væri þegar hún tók að sér verkefnið. Nú er tónlistarmaðurinn orðinn enn þá þekktari en hann var, ekki aðeins fyrir tónlist sína heldur einnig fyrir það sem hann stendur fyrir. „Öll augu eru á Púertó Ríkó sem hefur kannski ekki verið fjallað mikið um áður. Það er bara rosalega góður meðbyr fyrir þessa mynd. Ég held að hún sé að koma út á hárréttum tíma.“ „Maður er stærri þegar það er traust“ Gyða segist finna fyrir miklu trausti frá leikstjóranum sem skipti miklu máli. Oft þegar hún hefur sótt um kvikmyndaverkefni hafa leikstjórar viljað fá tónlist sem hljómar á ákveðinn hátt. „Þar sem í rauninni er verið að biðja þig um að semja eitthvað sem er eins og eitthvað annað.“ „Það er eitthvað sem ég hef ekki áhuga á í kvikmyndatónlist. Ég hef verið mjög þrjósk í að senda bara það sem ég geri og fæ þá kannski ekki myndina,“ segir Gyða. Það sé því mjög góð tilfinning að einhver hafi hlustað á tónlistina hennar og séð möguleikann í henni sem tónskáldi án þess þó að hún hafi samið neitt í líkingu við það sem leitast var eftir. „En það er einhver sem heyrir hver þú ert og hvað þú getur gert, sem er svo fallegt og gott.“ „Þetta traust skiptir svo miklu máli. Maður er stærri þegar það er traust. Maður er stærri í samstarfinu og getur gefið meira af sér, í staðinn fyrir að vera eingöngu að þjónusta.“ „Ég held að besta samstarfið sé þannig, þegar allir geta verið algjörlega þeir sjálfir og gert sitt besta.“ Fann að hún var tilbúin og fékk símtal stuttu síðar Gyða hafði fengið að kynnast kvikmyndatónlistarheiminum nokkru áður en hún fór sjálf að semja fyrir myndir. Þá var hún að spila inn á tónlist annarra og varð hrifin af forminu sem kallar á allt annað frá henni sem listamanni. „Ég gerði það í mörg ár og þá fannst mér ég líka sjá aðeins það sem ég vil kannski ekki gera innan þessa heims.“ Oft séu tónskáld nefnilega beðin um að semja tónlist sem hljómar eins og annað verk til að komast hjá vandræðum með réttindi. „Það var eitthvað sem ég hafði engan áhuga á.“ Hún hugsaði þá með sér að hún myndi aðeins vilja semja út frá eigin rödd. „Á þeim tíma fannst mér eins og ég væri enn að leita að henni. Svo man ég eftir augnablikinu þegar ég kom úr tökum og hugsaði: Núna er ég tilbúin að skora kvikmynd. Ég er alveg búin að finna mína rödd.“ Nokkrum dögum síðar hringdi Ari Alexander Ergis Magnússon leikstjóri í hana og bað hana að semja við kvikmyndina Undir halastjörnu. Það var hennar fyrsta kvikmyndaverkefni. „Ég læt dómhörkuna ekki stjórna lífi mínu“ Í gegnum tíðina hefur Gyða glímt við fullkomnunaráráttu og talað um það í viðtölum að eftir klassískt nám í tónlist sé maður orðinn meistari í dómhörku. Í dag sé samband hennar við dómhörkuna allt annað. „Ég þurfti að fara í mikinn skóla til að leysa hana úr læðingi. Ég held að ég sé bara á mjög góðum stað. Ég læt dómhörkuna ekki stjórna lífi mínu,“ segir hún. „Ég vissi það ekki þá en það að hafa gaman og njóta ferlisins skiptir mig bara miklu meira máli í dag heldur en einhver vinnuharka sem átti að vera algjör dyggð. Núna skiptir bara máli að njóta sín og njóta vinnunnar og augnabliksins. Mig langar oft bara að búa til eitthvað ævintýri í kringum eitthvað verkefni og hugsa hvernig sé hægt að gera það sem skemmtilegast.“ Smá feimin við þessa plötu Von er á nýrri plötu eftir Gyðu sem heitir Mother Pearl. Hún segir plötuna vera mun persónulegri en sín fyrri verk. „Ég er smá feimin við þessa plötu. Mér finnst ég svo berrössuð á henni,“ viðurkennir Gyða sem segir hlutina meira beint út en áður. „Mér finnst eins og maður þurfi ekki endilega að útskýra lögin eða segja um hvað hún er en síðan finnst mér það líka mjög augljóst ef maður les textana. En vonandi er það ekki of augljóst,“ bætir hún við og hlær. Platan hafi verið samin á miklu umrótatímabili í lífi hennar. „Það var mjög margt að gerast og margar breytingar, mikið af áreiti.“ Hún segist þó taka fagnandi á móti breytingum og finnst þær yfirleitt af hinu góða. Borgar sig að vera trú sjálfri sér Gyða segist mjög ánægð með að hafa fengið þetta kvikmyndaverkefni eftir að hafa verið svo þrjósk í áranna rás að beygja sig ekki fyrir kröfum annarra um að hljóma eins og einhver annar. „Ef ég hefði beygt mig í öðrum verkefnum til þess að fá þau, þá hefði ég kannski ekki fengið þetta.“ „Að vera trú sjálfri mér borgaði sig að lokum.“ Gyða Valtýsdóttir ræddi við menningarvef RÚV um komandi kvikmyndaverkefni og nýja plötu.