Norska hagstofan SSB hefur fallið frá þeirri spá sinni frá í desember að seðlabanki landsins lækki stýrivexti sína á árinu 2026. Ný spá stofunnar, sem leit dagsins ljós í morgun, nær allt til ársins 2029 og er því þar spáð að ein vaxtalækkun verði gerð á næsta ári og ein til árið 2028.