Þurrt hár og hvað er hægt að gera?

Þurrt hár er eitt algengasta hárvandamálið sem fólk kvartar yfir. Hárið verður gróft viðkomu, flækist auðveldlega og missir bæði glans og mýkt. Margir upplifa líka að endarnir slitni hraðar og að hárið verði erfiðara í mótun. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf heildverslunar fjallar hér um þurrt hár.