Ís­lensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upp­lifun gesta

Þegar gestir skrá sig inn á hótel eða gististað eru það oft litlu atriðin sem sitja eftir í minningunni þegar þeir eru komnir aftur heim. Hvernig herbergið lítur út, hvernig það ilmar og ekki síst hvernig gestir sofa um nóttina. Fyrir ferðaþjónustuna skiptir þessi upplifun miklu máli, enda geta þægindi og gæði rúmfatnaðar haft bein áhrif á umsagnir og ánægju gesta.